Frí heimsending ef verslað er fyrir 10.000kr

Leita

    Göt í eyru

    Við í Meba tökum að okkur að gera göt í eyrun. 

    • Það þarf ekki að panta tíma í götun. 
    • Einstaklingar undir 18 ára verða að hafa leyfi frá forráðamanni, og verða forráðamenn að senda okkur tölvupóst. 
    • Tölvupóstur fyrir Kringluna (mebak@meba.is) / Tölvupóstur fyrir Smáralind (mr@meba.is).

    Frekari upplýsingar & reglur um umhirðu 

    • Skotlokkar kosta 5.500kr (aðeins selt í pörum), ekkert er tekið fyrir að gera götin. 
    • Ekki er hægt að koma með skotlokka til að láta skjóta í sig, til þess þarf skotlokka sem passa í skotlokkabyssur okkar. 
    • Skotlokkarnir okkar eru úr læknastáli og eru því nikkelfríir. 
    • Það er ekki leyfilegt að skjóta lokkum úr umbúðum sem hafa verið opnaðar áður þar sem þeir teljast ekki lengur dauðhreinsaðir. Opna þarf pakkninguna á staðnum og skjóta strax. 
    • Ef hætt er við að fá göt eftir að búið er að opna umbúðirnar þarf samt að borga fyrir lokkana. 
    • Við gerum einungis göt í sleppla, ekki í brjósk eða þess háttar. 
    • Aldurstakmark er 2 ára. 
    • Aðeins er skotið báðum megin í einu í börn 8 ára og yngri. 
    • Þessa lokka skal hafa í eyrunum í ca. 8 vikur, en að sjálfsögðu má hafa þá lengur.
    • Mikilvægt er að hafa einhverja lokka í götunum fyrsta árið. 
    • Sótthreinsa skal götin tvisvar á dag (gott að miða við kvölds og morgna) í ca. mánuð. 
    • Alls ekki taka lokka úr á meðan hreinsað er.
    • Við mælum með sprittinu Klórhexidin. Einnig er hægt að notast við Própanól. 
    • Dýfið eyrnapinnum í sprittið eða vætið bómul og berið vel á, bæði framan og aftan með lokkana í. Gætið þess að sprittið komist vel að götunum sjálfum. 
    • Alls ekki snúa lokkunum og ekkert snerta þá neitt að óþörfu. 
    • Við mælum ekki með sundi næstu 2-3 daga. 
    • Ekki er heimilt að taka myndband en við hvetjum fólk til að taka fyrir og eftir mynd.
    • Hér sést brot af skotlokkunum sem við bjóðum upp á: